
Viltu kynnast
teyminu?
Lítið en gott teymi

Aðeins um okkur
Við á Serva erum lítið teymi af áhugasömum einstaklingum sem vilja gera veitingabransann betri. Með áralangri reynslu í bransanum vitum við hvað þarf til að reka veitingastað vel.
Okkar markmið er að einfalda daglegan rekstur veitingastaða og gera það auðveldara fyrir eigendur og starfsfólk að einbeita sér að því sem skiptir mestu máli - matnum og viðskiptavininum. Við trúum á að tæknin eigi að vinna fyrir okkur, ekki á móti okkur.
Okkar teymi

Viltu koma í teymið okkar?
Við á Serva erum á örri vegferð til að gera veitingabransann betri og einfaldari. Ef þú brennur fyrir tækni, hönnun eða veitingamálum og vilt vera hluti af spennandi verkefni, þá viljum við heyra frá þér. Við leitum að áhugasömu fólki sem deilir sýn okkar um að einfalda daglegan rekstur veitingastaða og gera eigendum kleift að einbeita sér að því sem skiptir mestu máli.

